desember 07, 2005 

Jæja þá held ég að það sé kominn tími til að maður fari að segja eitthvað inná þessa síðu.
Hef ekki bloggað hérna síðan 9. nóv, shitt þetta gengur ekki. Annars er maður bara búinn að vera í prófum og svona. Það er því gaman að segja frá því að ég lauk síðasta prófinu í dag.....allavega á þessu ári. Þarf að taka veikindarpróf útaf því að ég var veikur í helvítis Gerð og Greiningu ársreikninga. Það var einmitt þess vegna sem ég þurfti að fara uppá læknastöð í dag til að ná mér í eitt stykki vottorð. Lenti í atviki þar sem ég vil helst gleyma sem fyrst. Vil samt eiginlega létta þessu af mér svo ég held að ég segi ykkur bara frá þessu. Málið var að heimilislæknirinn minn var ekki við svo ég pantaði bara tíma hjá einhverjum öðrum lækni.
Eftir að hafa beðið þarna í einhvern tíma kemur þessi víga gella fram og kallar Bjarni Már....þá var þetta staðgengill Jörundar læknis....og var ég ekki ósáttur með þessi skipti. Hún byrjar að spyrja mig að þessu hefðbundna af hverju ég þurfi þetta vottorð, í hvaða skóla ég sé, hvernig gangi og eitthvað þess háttar. Eftir að hafa spjallað við hana í einhvern tíma, meðan hún græjaði vottorðið, stendur hún upp og segir gjörðu svo vel Bjarni og gangi þér vel í prófinu. Ég þakkaði henni fyrir það en langaði að bæta einhverju við þetta og segi ósjálfrátt....... já og góða helgi...hún varð svona frekar vandræðaleg en sagði svo að sjálfsögðu sömuleiðis.
Svo dreif ég mig bara út og hugsaði með mér hvað í andskotanum var ég að segja þetta...það er miðvikudagur hálfvitinn þinn. Er samt eiginlega búinn að sannfæra sjálfan mig um að þetta hafi ekki verið sem verst...það er jú fimmtudagur á morgunn.
Annars langaði mig nú bara svona að létta þessu af mér. Langar svo að vekja athygli á því að félagi minn Snæi er á þessari stundu staddur í London að taka þátt í Battle of the bands fyrir Íslands hönd. Vona bara að þeim gangi sem allra best og þeir rúlli þessari keppni upp.

nóvember 09, 2005 


Jæja þá er það bara þirðja bloggið á sömu vikunni. Ég hef séð að það eru kominn heil þrjú komment inná síðuna, sem þýðir að það eru allavega einvherjir sem eru að fara á hana. Skil reyndar ekkert hvað stendur þarna þar sem þetta er stillt á eitthvað Japanskt letur eða eitthvað, og ég hef ekki hugmynd um hvernig á að laga þetta. Ég átti reyndar í sömu vandamálum með sjálft bloggið um daginn, en þá var það snillingurinn hann Nóri sem að kippti því í liðinn. Spurning hvort maður dobbli Nóra til að laga þetta líka við tækifæri. Eða Haukur getur þú kannski reddað þessu? Það er ennþá sami aðgangurinn inná síðuna.
Annars var maður að koma úr svaka bolta með gamla Hvassó genginu. Skil samt ekki af hverju Omma litla var ekki boðið að vera með? Frekar leiðinlegt að þetta sé heldur ekki lengur uppí Hvassó. Er Hörður vörður kannski hættur? Maður saknar geðveikt spjallsins við Hödda eftir tímana, tók líka ósjaldan þriggjastigakeppni við hann eftir þá. Það fyndna við þessar þriggjastigakeppnir var að Höddi vann þær alltaf, þó ég hafi nú tekið þær nokkrar. Hörður er nebbla einn af þessum mönnum sem veit allt, getur allt, kann allt og er einfaldlega bara bestur í öllu. Hann var líka einn efnilegasti handknattleiksmarkmaður sem Ísland hefur átt, en því miður settu meiðsli strik í reikninginn og hann þurfti að hætta langt fyrir aldur fram. Sem betur fer segi ég nú bara fyrir Gumma Hrafnkels því ef Höddi hefði ekki meiðst hefði Gummi aldrei komist í landsliðið. Já djöfulli var alltaf gaman af Hödda, einn mesti snillingur sem ég hef kynnst á allri minni skólagöngu. Ef Hörður vörður yrði settur í 8. Sætið á lista sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar væri borgin unnin. Ég sé ekki hvernig hægt væri að tapa með þennan mann í baráttusætinu. Svo eru það bara framadagar Háskólans í Reykjavík á föstudaginn milli 17.00-19.30 og hvet ég alla til að mæta á þennan áhugaverða viðburð. Þarna munu verða kynningar á ýmsum málefnum er snerta íslenskt atvinnulíf. Reynt hefur verið að stíla inná þau málefni sem hvað heitust eru í umræðunni í dag (sum samt þreyttari en önnur). Ég er partur af hópi sem ætlar að fjalla um siðferði í auglýsingum. Við höfum fengið þrjá þekkta einstaklinga úr íslensku þjóðlífi til að koma og halda smá kynningu um þessi efni. Þorsteinn Guðmundsson leikari og hugmyndasmiður hjá ENNEMM auglýsingarstofu mun koma og halda kynningu um skemmtanagildi í auglýsingum og hversu langt megi ganga í þeim efnum. Anna Birna Halldórsdóttir frá Neytendastofu mun tala almennt um bönn við auglýsingum, hvað sé bannað og afhverju. Birgir Hákonarson frá Umferðastofu mun ræða umdeildar auglýsingar úr þeirra röðum. Þetta byrjar kl. 18.15 og verður í stofu 301 sem er á þriðju hæð skólans.

Í næstu fréttum af ON THE BJARNI

Mun Bjarni vera á leiðinni til London með Bóa frænda?
Mun Bjarni hafa verið handtekinn?
Mun Bjarni hafa verið rændur af gamalli konu?
Mun Bjarni vera djúpt sokkinn í trúarsöfnuð?
eða hangir hann bara í mjólkurverksmiðjum og borðar bara skyr og hangikjöt med sólþurrkuðum tómötum meðan hann slafrar í sig beikonhorni.

Kveðja úr umheiminum

nóvember 06, 2005 

Það er nú ekki hægt að segja annað en að skemmtileg helgi sé að baki.
Á föstudaginn var haldinn vetrarhátið viðskiptaráðs með glæsibrag. Vil óska Sæma og öllum þeim sem komu að þessu til hamingju með vel heppnaða hátíð. Það var bara óvenju vel mætt úr röðum gleðiklúbbsins að þessu sinni en það voru einungis Toggi og Keli sem forfölluðust.
Guðmundur Guðmundsson jr tók að sjálfsögðu ekkert annað í mál en að fá sérstaka rútu til að flytja gleðiklúbbsmeðlimi til og frá lóninu. Segja má samt að kvöldið hafi endað misvel hjá mönnum en ég ákvað hins vegar bara að vera á bíl að þessu sinni. Menn kvöldsins voru að sjálfsögðu D.Matt og Hilmar sem komu með skemmtilega innkomu.
Úrslit prófkjörs sjálfstæðisflokks voru gerð kunn á laugardagskvöldið. Við Bói frændi litum að sjálfsögðu til Jórunnar frænku ásamt Villa bró og Iggis. Þar var fólk almennt ánægt með útkomuna enda var Jórunn að koma frábærlega útúr þessu prófkjöri. Eftir stutta viðdvöl hjá frænku ákváðum við einnig að tékka á stemmningunni hjá Gísla Marteini. Þar var eins og við var að búast frekar léleg stemmning svo við röltum yfir til Hönnu Birnu sem var að koma ögn betur útúr þessu. Bói frændi rakst þar á gamlan skólabróður úr gaggó og urðu með þeim miklir fagnaðarfundir. Ég spurði félagann hvort Bói frændi hefði breyst mikið á þessum 30 árum og hann svaraði skellihlæjandi og sagði nei ég get nú ekki sagt það (þetta var frekar fyndið).
Ég held að það séu margir sem ættu að taka Bóa frænda sér til fyrirmyndar enda er ekki slæmt að vera ávallt ungur í anda. Það labbaði líka uppað okkur mjög svo furðulegur náungi og spurði okkur einn af öðrum hvort við værum að vinna hjá Stálbæ. Við litum allir hvor á annan og sögðum nei, af hverju? Hann segir þá, nei bara vinur minn er nebbla að vinna þar. Þetta var mjög furðulegt en samt eflaust ágætis náungi. Eftir þetta ákvað Bói frændi að drífa sig en við strákarnir tókum smá rölt um bæinn með viðkomu á prikinu þar sem við fengum okkur einn kaldan áður en heim var haldið. Maður kvöldsins var að sjálfsögðu Bói frændi sem hreint út sagt fór á kostum. Nú þarf maður bara að fara að ýta á eftir Bóa að halda plötukynningu fyrir okkur strákana. Annars þarf ég að þjóta núna er að sjóða slátur.

nóvember 03, 2005 

Hallo!

Djöfull er orðið langt síðan maður bloggaði síðast. Vildi svona prófa hvort þetta virkaði ennþá. Nú held ég að mður fari að vera helöflugur aftur. Vitidi þegar ég byrjaði að blogga fyrst fyrir einhverjum fjórum árum var eiginlega enginn kominn með þetta bloggdæmi. Kaglinn hefur nátturulega alltaf verið helvíti tölvuvæddur....það má líka segja að maður hafi alltaf verið soldið á undan sinni samtíð. Annars var það nú Haukur félagi minn sem reddaði þessu fyrir mig á sínum tíma. Þetta byrjaði þegar ég bjó í þýskalandi og Haukur félagi minn kom þá með þessa snilldarhugmynd að opna fyrir mig vefsíðu svo ég gæti sagt hvað væri af mér að frétta frá Deutschlandi. Hann lagði reyndar aldrei í það að kenna mér á þetta í gegnum tölvupóstinn. Ég sendi honum því alltaf hvað ég hafði að segja og hann birti það á síðunni, svo einfalt var það fyrir mig. Spurning hvort maður launi haglabyssunni greiðann og opni fyrir hann síðu þar sem Haukur.net er búin að liggja niðri um þó nokkurt skeið. Haukur hvað er í gangi? Maður er farinn að sakna frásagna frá kónsins Köben.
Annars er bara nóg að gera þessa dagana. Mikið af verkefnum í skólanum, vetrarhátíð framundan og svo hef ég eitthvað verið að hjálpa frænku minni í prófkjöri sjálfstæðisflokksins. Ég hvet alla til að setja Jórunni Frímannsdóttur Jensen í 4.sætið á lista sjálfstæðisflokksins. Hún er hjúkrunarfæðingur að mennt og hefur auk þess starfað sem varaborgarfulltrúi undanfarin 4.ár. Mér hefur fundist vanta soldið af fólki sem hefur þekkingu úr heilbrigðisgeiranum á lista sjálfstæðisflokksins og held ég að hún væri bara ágætis lausn á því...svo er hún líka Jensen eins og afi.
Ég hef mikið verið að velta því fyrir mér hvort ég ætti að taka upp Jensen nafnið. Bjarni Jensen hvernig hljómar það? Djöfull held ég að maður hefði orðið vinsæll í Danmörku ef maður hefði borið þetta nafn fyrir ári síðan. Hjólasölumaðurinn í kjallaranum hefði allavega aldrei abbast uppá okkur...töffarinn á horninu hefði borið virðingu fyrir okkur..og við hefðum fengið vinnu við eitthvað annað en að skúra (fyrir utan að kellingarnar hefðu orðið alveg brjálaðar í kallinn). ...já og sæmi hefði að sjálfsögðu ekki verið atvinnulaus allt sumarið.
Annars í sambandi við komandi prófkjörið hef ég mikið verið að velta því fyrir mér hvort ég ætti að setja Villa Vill eða Gísla Martein í fyrsta sætið. Þeir virðast vera alveg ágætis náungar og myndu eflaust báðir standa sig með prýði sem borgarstjórar. Mér hefur samt alltaf fundist Villa vanta einhvern sjarma til að geta leitt listann til sigurs í komandi kosningum. Eftir að Kári félagi minn sagði við mig áðan á msninu að Villi væri eins og einhver strætóbílstjóri í fermingarveislu (bara kominn í jakkafötin) áttaði ég mig á því að Gísli Marteinn er mun betri kostur í þetta. Annars ætla ég að fara að fá mér Cherios eða eitthvað...eða kannski bara halda áfram í helvítis garsinu...svei mér þá ég held að það væri ekki svo vitlaust.
Ha sel ég mat frá ykkur? Hverjum helduru að detti í hug að selja mat frá ykkur?

Bjarni Már

maí 22, 2003 

Ég er farinn að stunda golf, og líkar bara þokkalega.
Nú vantar mig bara mitt eigið sett, svo litili bróðir fái að hafa
sitt í friði. En spurningin er hvort maður ætti að fá sér
örvhent sett, þar sem ég er gæddur þeim eiginleika, að vera
örvhentur. Allavega mæli ég með þessu þetta er helvíti gaman.
Svo er það bara Eurovision á laugardaginn, búið að spá Íslandi
einu af fyrstu fimm sætunum, er það ekki annars eitthvað sem
gerist alltaf. Ég hef annars mjög góða tilfinningu fyrir þessu í ár,
og spurningin er hvort maður ætti ekki að fara niður í BT og skella
sér á eitt stykki sjónvarp. Hirgitta Baukdal á alveg örugglega ekki
eftir að klikka og setur BT á hausinn í leiðinni.

maí 09, 2003 

Jæja hvað segir fólkið þá?
Þá er maður bara mættur aftur í bloggmenninguna....gaman af því.
Mikið rosalega var ég ánægður þegar móðir mín tjáði mér að Ingibjörg
hefði hefði dottið út af þingi rétt fyrir klukkan níu í gærmorgun.
Hún hefur bara ekkert að gera á þing, ekkert frekar heldur en restin af
þessu samfylkingarfólki.
Aðalmarkið Samfylkingarinnar var að fella ríkisstjórnina allavega fyrir
kosningar. Það markmið tókst sem betur fer ekki en samt er þetta
Samfylkingarfólk að halda því fram að þeir hafi unnið einhvern glæsilegan
sigur, hvað er að þessu fólki!

maí 04, 2003 

Nýtt útlit